OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.
Forsíđa
Um Domus Vox
Stúlknakór Reykjavíkur
Cantabile Kvennakór
Vox feminae
Starfsmenn
Skráning
 

Domus Vox
Laugavegur 116
105 Reykjavík

sími 511-3737
www.domusvox.is
This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it

Skrifstofutími:
Mánudag – fimmtudag kl. 14:00-18:00

 
Haustönn 2011

 

Einsöngsdeild Domus vox

heldur aðventutónleika fyrsta sunnudag í aðventu 27. nóvember kl. 14:00 í Grensáskirkju. 

Ókeypis aðgangur, verið velkomin

 

Aðventutónleikar í Hallgrímskirkju 14. desember 2011

Kórar Margrétar J. Pálmadóttur, Stúlknakór Reykjavíkur, Vox feminae og Cantabile halda sína árlegu aðventutónleika í  Hallgrímskirkju þann 14. desember næstkomandi. Tónleikarnir heita „Kom ljóssins engill" og koma þar fram yfir 200 söngkonur.

Einsöngvarar eru Hanna Björk  Guðjónsdóttir og Maríus Sverrisson.  Hljóðfæraleikarar eru Antonia Hevesi á orgel, Hallgerður Ólafsdóttir á flautu, Eydís Franzdóttir á Óbó og Stefanía Ólafsdóttir á víólu. Stjórnendur eru Margrét J. Pálmadóttir og Guðrún Árný Guðmundsdóttir.

Um er að ræða tvenna tónleika kl. 18:00 hefðbundnir aðventutónleikar þar sem  miðaverð  er kr. 3.000 í forsölu.

Sérstakir hátíðartónleikar hefjast kl 20:30 og eru þeir til styrktar Sönghúsi okkar Domus vox.  Tónleikagestir fá heiðursnafnbótina Verndarenglar Domus vox , auk  miða á hátíðartónleikana er þeim boðið í opið hús í  Sönghúsið á Laugavegi 116 þann 18. febrúar nk. þar sem starfsemin  verður kynnt, og kórar hússins og einsöngvarar taka lagið ásamt  gestum.  Fyrir aðventutónleikana og opna húsið í febrúar greiða  Verndarenglar 5.000 krónur.

 Vonandi hefur þú tök á að styðja það öfluga starf sem fram fer  i Domus Vox.  Miðasala er hjá kórfélögum og í síma 511-3737 / 893-8060 / 863-4404

 

 

 

 Vorönn 2011

 

HÆTTU AÐ GRÁTA HRINGANÁ

Vortónleikar í Grensáskirkju

laugardaginn 9. apríl 2011 kl. 15:00

Stúlknakór Reykjavíkur

MAGGA STÍNA

STEFANÍA ÓLAFSDÓTTIR

HALLDÓR SMÁRASON

STRENGJASVEIT

Stjórnandi MARGRÉT J. PÁLMADÓTTIR

Miðaverð kr. 1500

 

 

Þar skein sól í heiði

Tónleikar Vox feminae í Grensáskirkju 26. mars 2011 kl. 15:00

Stjórnandi Margrét J. Pálmadóttir

Píanó Antonia Hevesi

félagar úr Stúlknakór Reykjavíkur og aðrir gestir

 

 

Velkomin á Bollufjör – maraþon söngdagskrá alls starfs Domus vox í Grensáskirkju sunnudaginn 6. mars 

Dagskráin hefst með messu kl. 11 í Grensáskirkju, Stúlknakór Reykjavíkur leiðir sönginn.  Að messu lokinni kl. 12.30 hefst samfelld dagskrá, í kirkjunni og safnaðarheimilinu, með fallegri tónlist tengdri kærleika og trú.  Frá kl. 13:30­16:30 verður bollukaffi í safnaðarheimili Grensáskirkju ásamt markaði með ýmsum spennandi varningi.  Fjölskyldur og aðrir velunnarar eru hvattir til að taka daginn frá, mæta og upplifa sönggleðina, gera góð kaup á markaðinum og skemmta sér með okkur. 

Miðaverð á tónleikana er kr. 1000 fyrir fullorðna kr. 500 fyrir börn og er bollukaffið innifalið

                      

 

Haustönn 2010

 

Vox feminae  - Kristskirkja 4. nóvember kl. 20:30 á allra heilagra messu.
 Reykholtskirkja 7.nóvember við og eftir messu kl. 14: 00.  Hafnarfjarðarkirkja  10. nóvember kl. 20:30.

"O magnum mysterium
"  Vox feminae heldur trúarlega tónleika í tengslum við allra heilagra messu líkt og mörg undanfarin ár. Auk Vox feminae kemur Stefán S. Stefánsson saxófónleikari fram á tónleikunum.

Cantabile og Stúlknakór Reykjavíkur ásamt Maríusi Sverrissyni í Víðistaðakrikju 14. nóvember kl. 17:00

“Vetrarsól”  er nafn hins þekkta lags Gunnars Þórðarsonar sem Maríus flytur meðal annars. Einnig flytja 100 konur og stúlkur falleg trúarleg verk, við undirleik Agnars Márs Magnússonar ásamt hljómsveit. 

 Hallgrímskirkja 9. desember kl. 20:30

“Yfir fannhvíta jörð” er yfirskrift glæsilegra aðventutónleikar allra kóra sönghússins Domus vox. Á tónleikunum koma fram 200 söngkonur á öllum aldri og flytja margar af okkar fallegustu aðventu- og jólaperlum ásamt einsöngvaranum Maríusi Sverrissyni.

 Stjórnandi allra tónleika er Margrét J. Pálmadóttir

 

 Miðaverð er frá kr. 2.000 – 4.000 afsláttur í forsölu og hjá kórfélögum.  Nánari upplýsingar í Domus vox 511-3737 /863-4404 / 893-8060.

 

 

Vorönn 2010

 
Óperugleði með Vox feminae og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur í Íslensku óperunni!Miðvikudaginn 12. maí kl. 20 og fimmtudaginn 13. maí kl. 16 stendur kvennakórinn Vox feminae fyrir sannkallaðri söngveislu í Íslensku óperunni. Tónleikarnir bera yfirskriftina „Brindisi!“ sem á íslensku útleggst „Þína skál!“ og þar verða flutt verk úr mörgum þekktustu verkum óperusögunnar. Þar koma fram Vox feminae, Sigrún Hjálmtýsdóttir, félagar úr karlakórnum Fóstbræðrum, félagar úr Stúlknakór Reykjavíkur ásamt fleiri listamönnum.

" Nú vetur burtu víkur " Söngskólinn Domus vox heldur upp á 10 ára afmæli með stórtónleikum í Langholtskirkju á sumardaginn fyrsta 22. apríl kl. 20:00, undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur.  Fram koma kvennakórinn Cantabile,Stúlknakór Reykjavíkur, kennarar skólans og hljómsveit undir stjórn Stefáns S. Stefánssonar.

Stúlknakór Reykjavíkur og Kramhúsið halda stórsýningu í Íslensku óperunni 21. apríl undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur og Hafdísar Árnadóttur í tengslum við Barnamenningarhátíð Reykjavíkurborgar, en þær eiga 25 ára samstarfsafmæli um þessar mundir.  um 100 börn frá sjö ára aldri koma fram og skapa einlæga samfellda sýningu.  Yfirskrift sýningarinnar er " Tíminn líður trúðu mér" , en þar minna börnin foreldra á, hversu dýrmæt samvera fjölskyldunnar er!

 

Haustönn 2009

 
Stúlknakór Reykjavíkur ásamt Vox feminae og Gospelröddum Domus vox taka þátt í fernum Frostrósartónleikum í Laugardalshöll dagana 12. og 13. desember 

Jólatónleikar söngdeildar Domus vox  verða haldnir í Háteigskirkju laugardaginn 5. desember kl. 16:00.  Aðgangur er ókeypis

Tíundu aðventutónleikar Domus vox

Hátíð er ný er yfirskrift glæsilegra aðventutónleika kóra Margrétar J. Pálmadóttur í Hallgrímskirkju miðvikudaginn 9. desember kl. 20 og
föstudaginn 11. desember kl. 20.

Á tónleikunum koma fram 180 söngkonur á öllum aldri úr Stúlknakór Reykjavíkur og kvennakórunum Cantabile og Vox feminae og flytja margar af
okkar fallegustu aðventu- og jólaperlum.

Stjórnandi tónleikanna er Margrét J. Pálmadóttir og einsöngvari með kórunum er Hanna Björk Guðjónsdóttir sópran. Eydís Franzdóttir leikur á óbó,
Sigurður Halldórsson á selló og Antonia Hevesi á orgel.

Caritas tónleikar í Kristskirkju - Vox feminae ásamt Stúlknakór Reykjavíkur tekur þátt í Caritas tónleikum, styrktartónleikum kaþólsku kirkjunnar sunnudaginn 15. nóvember ásamt öðrum listamönnum þar á meðal Diddú og Kristján Jóhannsson.

Trúar tónar - Kvennakórinn Cantabile og Stúlknakór Reykjavíkur halda tónleika í Háteigskirkju sunnudaginn 8. nóvember kl. 17.00. 

Kyrie - Tónleikar Vox Feminae í Kristskirkju fimmtudaginn 29. október kl. 20:00.  Sunnudagir 1. nóvember syngur kórinn í messu í Reykholti og flytur hluta af efnisskrá Kyrie tónleikanna eftir messu.